|
|
07.02.2005 21:43:33 / eg_get
...í rjómabollu í dag... það voru bollur á boðstólum í
vinnunni minni... og það var ein bolla með baileysrjóma... ef
það hefði ekki verið vigtunardagur á morgun þá hefði ég örugglega
étið hana 
En svona var dagurinn í dag:
Morgunmatur: fjölvítamín, 2 lýsisperlur, 1
skyr.is drykkur m/melónu og ástaraldinum og 1 vatnsglas
Morgunkaffi: 2 kaffibollar m/g-mjólk
Hádegismatur: Létt abt mjólk m/jarðarberjum
og múslí, 1 gróf speltbrauðsneið m/L&L og osti
og 1 vatnsglas
Síðdegiskaffi: 2 kaffibollar m/mjólk og 1 gult
epli
Kvöldmatur: ofnbakaður fiskur m/150 g af
hýðishrísgrjónum og 2 glös af vatni
Kvöldkaffi: 100 g jarðarber
Hitaeiningar: ca. 1.158
Hlutfall: 25% fita - 36% prótein - 39%
kolvetni
Hreyfing: þrekhjól 30 mínútur
»
07.02.2005 10:26:07 / eg_get
Þið þurfið ekkert að hafa áhyggjur af mér... mín rútína er byrjuð og byrjaði í raun í gærkveldi  Ég vaknaði í morgun og hjólaði í minn hálftíma og borðaði svo skyrdrykkinn á eftir og tók vítamínið... ekkert erfitt að byrja aftur í rútínunni enda át ég yfir mig af rjóma um helgina og langar ekki að fá mér rjóma á næstunni
»
06.02.2005 19:35:12 / eg_get
Afhverju er maður að þessu áti? maður finnur alveg hvað þetta er
ekki gott í magann... en samt gerir maður þetta Gærdagurinn var
ekki góður... át yfir mig í afmælisveislunni... maginn er
greinilega orðinn aðeins minni... og það var eins og ég
væri með grjót í maganum... missti mig dáldið þar og át eins og
hestur... svo fór ég í matarboð í gærkvöldi og það var mjög fínt...
bara eftirrétturinn sem var mjög óhollur... en ég reyndar borðaði
grillaða kartöflu og ég sem hef ekki borðað kartöflur í mánuð
hehehe... ég ætla nú ekkert að telja saman hitaeiningarnar hérna
enda hef ekki hugmynd... set bara daginn í dag inn 
Ég borðaði bollur í dag... fann í einhverju blaði að
vatnsdeigsbollur úr bakaríum séu ca 100 g að þyngd og
næringarinnihaldið er svona:
hitaeiningar = 320 fita =
25 g prótein = 5 g kolvetni =
20 g
Ég reiknaði með að hafa borðað 300 g en ég veit svo sem ekkert
hve þungar þær voru en ég borðaði tvær vatnsdeigsbollur m/búðing og
rjóma og eina litla gerbollu m/frómans og rjóma.... svo eina
vatnsdeigs bara m/súkkulaðikremi... en þetta er bara slump hjá mér
með þyngdina enda ómögulegt að giska nákvæmlega á þetta... en vá
hvað fituinnihaldið er hátt 
En svona var dagurinn í dag:
Hádegismatur: 2 flatkökur m/smjörva og
osti, 1 sneið af heimabökuðu speltbrauði líka m/smjörva og osti
og 1 kaffibolli m/mjólk
Síðdegiskaffi: 300 g af bollum og 2 kaffibollar
m/mjólk
Kvöldmatur: fitulítil kjötsúpa sem ég átti í frysti
Hitaeiningar: ca. 1.785
Hlutfall: 54% fita - 16% prótein - 30%
kolvetni
Hreyfing: engin nema bílaþvottur 
»
04.02.2005 17:49:49 / eg_get
Ohhh hvað ég þurfti á þessum örfáu súkkulaðihúðuðu hnetum að
halda... fórnaði poppkorninu sem ég var búin að plana að fá mér í
kvöld í staðinn fyrir þetta Fór í Nóatún eftir vinnu að versla
og var svo þreytt og svöng að ég keypti nokkrar súkkulaðihúðaðar
hnetur... fékk loksins nammi En þetta er allt innan
hitaeiningafjöldans í dag þannig að þetta var í lagi 
Þá er komið að veisluhelgi ársins... afmæliskaffi á morgun og
svo matarboð um kvöldið og svo bollukaffið hjá ömmu á
sunnudaginn... ég verð í borgarferð og mun því ekki blogga neitt
fyrr en á sunnudagskvöldið... ég vona að ég geti sagt ykkur þá að
ég hafi ekki borðað eins og flóðhestur Er dáldið hrædd um
að ég eigi eftir að sukka big time En þá bara verð ég að taka á
því í næstu viku... góða helgi skvísur
En svona var dagurinn í dag:
Morgunmatur: 2 lýsisperlur, fjölvítamín, skyr.is drykkur
m/mangó og ástaraldinum, 1/2 banani og 1 vatnsglas
Morgunkaffi: 1 kaffibolli m/g-mjólk
Hádegismatur: 1 sneið af heimabökuðu
speltbrauði (65 g) m/L&L og osti, 1 létt abt mjólk
m/jarðarberjum og múslí og 1 vatnsglas
Síðdegiskaffi: 2 kaffibollar m/g-mjólk og ca. 36 g af
súkkulaðihúðuðum hnetum.
Kvöldmatur: Ofnbakaður fiskur
m/hýðishrísgrjónum og 1 glas af coke light
Kvöldkaffi: coke light
Hitaeiningar: ca. 1.267
Hlutfall: 30% fita - 34% prótein - 36%
kolvetni
Hreyfing: Þrekhjól 30 mínútur
»
03.02.2005 18:32:55 / eg_get
... það var erfitt að hjóla í morgun... fór að sofa um 00:30 í
gær og þá var þetta afskaplega erfitt... huggaði mig við það
að það væri svo stutt í helgina en þá er hjólafrí í tvo daga Mér
líður annars bara stórvel... var nú reyndar að hugsa um að manni
vantar að auka fjölbreytnina... ég er bara þannig að ég festist í
að borða eitthvað ákveðið og þá verður það svoleiðis dag eftir
dag... svona eins og með morgunmatinn og hádegismatinn En ég
nenni nú ekki að vera eitthvað að böggast yfir þessu... það er
örugglega fullt af fólki sem borðar það sama dag eftir dag 
En svona var dagurinn í dag:
Morgunmatur: 2 lýsisperlur, fjölvítamín, skyr.is drykkur
m/vanillu, 1/2 banani og 1 vatnsglas
Morgunkaffi: 1 kaffibolli m/g-mjólk
Hádegismatur: 1 sneið af heimabökuðu
speltbrauði m/L&L og osti, 1 létt abt mjólk
m/jarðarberjum og múslí og 1 vatnsglas
Síðdegiskaffi: 2 kaffibollar m/g-mjólk og 1 rautt
epli
Kvöldmatur: Indverskur kjúlli m/hýðishrísgrjónum og
salati m/furuhentum ásamt 1 glasi af diet coke
Kvöldkaffi: Létt jógúrt m/ferskjum og
ástaraldinum
Hitaeiningar: ca. 1.224
Hlutfall: 23% fita - 33% prótein - 44%
kolvetni
Hreyfing: Þrekhjól 30 mínútur
»
02.02.2005 19:54:20 / eg_get
... mér finnst vigtin á miðvikudögum alltaf vera betri en á
þriðjudögum Ég var sem sagt 129,7 kg í morgun og var
afskaplega glöð... en ég er samt ekki að búast við miklu
þyngdartapi þessa vikuna því að það eru þvílík veisluhöld
fyrirhuguð um helgina... og ég ætla rétt að vona að ég borði
lítið... verð mjög sátt ef ég næ að vera 129,5 kg á þriðjudaginn
*krossiputta* nú auðvitað myndi ég verða afskaplega sæl ef ég yrði
enn léttari 
En svona var dagurinn í dag:
Morgunmatur: 2 lýsisperlur, fjölvítamín, skyr.is drykkur
m/mangó og ástaraldinum og 1 vatnsglas
Morgunkaffi: 2 kaffibollar m/g-mjólk
Hádegismatur: 1 sneið af heimabökuðu
speltbrauði (78 g) m/L&L og osti, 1 létt abt mjólk
m/jarðarberjum og múslí, 1/2 banani og 1 vatnsglas
Síðdegiskaffi: 1 kaffibolli m/g-mjólk og svo fékk ég
mér svolítið af hentumixi
Kvöldmatur: Indverskur kjúlli m/hýðishrísgrjónum og
salati m/furuhentum ásamt 1 glasi af diet coke
Kvöldkaffi: melónubiti (á örugglega líka eftir að
drekka slatta af vatni því að kjúllinn var óvenjusterkur)
Hitaeiningar: ca. 1.211
Hlutfall: 26% fita - 32% prótein - 42%
kolvetni
Hreyfing: Þrekhjól 30 mínútur
»
01.02.2005 18:58:36 / eg_get
... mér fannst þetta bara þrælgott og er ég búin að setja
uppskriftina undir "hollar uppskriftir" 
En svona var dagurinn í dag:
Morgunmatur: 2 lýsisperlur, fjölvítamín, skyr.is drykkur
m/mangó og ástaraldinum og 1 vatnsglas
Morgunkaffi: 1 kaffibolli m/g-mjólk
Hádegismatur: 2 hrökkbrauðsneiðar
m/L&L og osti, 250 g skyr.is m/vanillu, 1 dl fjörmjólk,
1/2 banani og 1 vatnsglas
Síðdegiskaffi: 1 kaffibolli m/g-mjólk
Kvöldmatur: spelt lasagne, gúrkur og 2 glös diet
coke
Kvöldkaffi: 1 gult epli
Hitaeiningar: ca. 1.246
Hlutfall: 28% fita - 38% prótein - 35%
kolvetni
Hreyfing: Þrekhjól 30 mínútur
»
01.02.2005 07:19:10 / eg_get
... en svona er þetta... það fóru 500 g þessa vikuna og ég er bara
sátt þó að ég hefði alveg verið til í að missa ekki nema 100 g til
viðbótar
»
31.01.2005 21:40:37 / eg_get
... búin að baka þrefalda brauðuppskrift og ætla ég sko að
frysta brauðin... mmmm mig langaði mikið til að fá mér brauð í
kvöld Annars er ég búin að plana daginn á morgun og þá verður
sko tilraunir í eldhúsinu mínu... ég er búin að ákveða að búa til
speltlasagne m/hakki og kotasælu... bíð spennt eftir að prófa
það... auðvitað læt ég uppskriftina inn ef hún er góð 
En svona var dagurinn í dag:
Morgunmatur: 2 lýsisperlur, fjölvítamín, skyr.is drykkur
m/mangó og ástaraldinum og 1 vatnsglas
Hádegismatur: 2 sneiðar af heimabökuðu
speltbrauði m/L&L og osti, létt abt mjólk
m/jarðaberjum og múslí, 1/2 banani og 1 vatnsglas
Síðdegiskaffi: 2 kaffibollar m/g-mjólk og 1 epli
Kvöldmatur: kjúklingasalat m/furuhnetum og fetaosti
Hitaeiningar: ca. 1.167
Hlutfall: 28% fita - 35% prótein - 37%
kolvetni
Hreyfing: Þrekhjól 30 mínútur
»
30.01.2005 17:21:14 / eg_get
Eftir að hafa horft á kökur í gærdag... á tveimur stöðum þá
ákvað ég að leyfa mér að fá mér eina sneið af súkkulaðiköku og smá
þeyttan rjóma með því að við vorum í kaffiboði. Ég skar niður annað
í staðinn og þarf því að vera svöng fram að kvöldmat í staðinn...
því að ég vil nú ekki borða of mikið af hitaeiningum... en
svakalega var hún góð Maður getur stundum leyft sér smá í
hóflegu magni eins og ég gerði í dag 
En svona var dagurinn í dag:
Morgunmatur: 2 lýsisperlur, fjölvítamín, skyr.is drykkur
m/vanillu og 1 vatnsglas
Hádegismatur: 2 sneiðar af heimabökuðu
speltbrauði (80 g) m/L&L og osti og drakk kaffi latte
með
Síðdegiskaffi: 1 kaffibolli m/léttmjólk og 1 sneið
súkkulaðikaka m/rjómaslettu
Kvöldmatur: ofnbakaður fiskur m/hýðishrísgrjónum og 1
vatnsglas
Kvöldkaffi: 1 epli
Hitaeiningar: ca. 1.265
Hlutfall: 33% fita - 31% prótein - 36%
kolvetni
Hreyfing: engin
»
30.01.2005 13:26:31 / eg_get
... hvað brauðið var gott... mjög auðvelt að gera þetta  En því
miður er þetta samt ekki hollt... ég gæti borðað endalaust af þessu
eins og öðrum brauðum en það er bara ekki í boði  Samt er þetta
hollara en venjuleg brauð... ætla að skella uppskriftinni undir
hollar uppskriftir
»
29.01.2005 21:51:33 / eg_get
Já ég skrapp í borgarferð... tilefnið var nú að kaupa lítið
formkökuform, spelt, sólkjarnafræ, hörfræ og eitthvað fleira efni
til bakstur Já nú ætla ég að baka mín brauð sjálf Svo
svakalega dýr þessi hollu brauð... mikið ódýrara að baka þau sjálf

En svona var dagurinn í dag:
Morgunmatur: 2 lýsisperlur, fjölvítamín, skyr.is drykkur
m/mangó og ástaraldinum og 1 vatnsglas
Morgunkaffi: 1 kaffibolli m/g-mjólk
Hádegismatur: létt abt mjólk m/jarðaberjum og
múslí, 2 flatkökusneiðar m/smjörva og osti og 1 vatnsglas
Síðdegiskaffi: 1 kaffibolli m/g-mjólk
Kvöldmatur: lambalæri m/kínakáli, gúrkum, papriku og
grænum baunum og1 vatnsglas
Kvöldkaffi: 1/2 poki létt Orville örbylgjupopp og
1 glas af diet coke
Hitaeiningar: ca. 1.215
Hlutfall: 32% fita - 28% prótein - 40%
kolvetni
Hreyfing: engin nema þá búðaráp 
»
28.01.2005 19:53:42 / eg_get
... að borða hollan mat... og er að hjóla á morgnana... en
vigtin fór upp á miðvikudaginn og vill bara vera þar... kenni
því um að ég sé á túr... ég ætlaði mér að losna við kíló á
viku með því að vera svona dugleg... verð bara að krossa
puttana að ég léttist þó ekki niður í það sem ég var
síðasta vigtunardag Ég er samt ekkert svekkt
sko... bara finnst leiðinlegt að sjá ljótari tölu á vigtinni... en
ég held ótrauð áfram auðvitað... nú er matarboðið og bolluátið um
næstu helgi... og ég verð nú bara að viðurkenna það að ég væri svo
til í að sleppa því að fara í þessi boð... en ég get það nú ekki...
verð bara að vera dugleg og missa mig ekki í neitt át um næstu
helgi 
En svona var dagurinn í dag:
Morgunmatur: 2 lýsisperlur, fjölvítamín, skyr.is drykkur
m/mangó og ástaraldinum og 1 vatnsglas
Morgunkaffi: 2 kaffibollar m/g-mjólk
Hádegismatur: 1 ristuð spelt
fjölkornabrauðsneið m/L&L og osti 26%, afgangur af
kjúklingasalatinu og 1 vatnsglas
Síðdegiskaffi: 2 kaffibollar m/g-mjólk og nokkrar hnetur
Kvöldmatur: Indverskur kjúklingaréttur m/100 g
hýðishrísgrjónum og salati m/furuhnetum ásamt 1 glasi af diet
coke
Kvöldkaffi: Jarðarber og ferskur ananas (afgangur
úr saumaklúbbnum)
Hitaeiningar: ca. 1.259
Hlutfall: 28% fita - 38% prótein - 34%
kolvetni
Hreyfing: þrekhjól 30 mínútur
»
27.01.2005 23:28:28 / eg_get
Jæja ég er ekki viss um vinkonunum hafi líkað þetta... en það
verður þá bara að hafa það... bauð upp á kjúklingasalat og spelt
brauð og svo fullt fullt af ávöxtum... og svo appelsínu og banana
sorbetís.... allt hollt og gott... fannst samt skrýtið að þær
drukku appelsín með þessu hehehe 
En svona var dagurinn nokkurn veginn:
Morgunmatur: 2 lýsisperlur, fjölvítamín, skyr.is drykkur
m/vanillu og 1 vatnsglas
Morgunkaffi: 2 kaffibollar m/g-mjólk
Hádegismatur: 2 spelt
fjölkornabrauðsneiðar m/L&L og osti 26%, létt abt mjólk
m/jarðaberjum og múslí og 1 vatnsglas
Síðdegiskaffi: 1 kaffibolli m/g-mjólk
Kvöldmatur og kvöldkaffi: Kjúklingasalat, smá biti af
epli, 1 sneið ferskur ananas, 1 plóma, 3-4 jarðarber, 2 brómber, 2
hindber, 1 melónubiti, nokkur vínber og svo appelsínu og
bananasorbetís... kannski eitthvað meira af ávöxtum veit ekki
næringarinnihaldið í öllu þannig að sennilega hef ég borðað
eitthvað meira af hitaeiningum í dag
Hitaeiningar: ca. 1.235
Hlutfall: 29% fita - 29% prótein - 41%
kolvetni
Hreyfing: þrekhjól 30 mínútur
»
26.01.2005 18:21:57 / eg_get
Þá er það dagurinn í dag... ég reyndar hjólaði ekki í morgun því
að ég var að drepast úr túrverkjum Jæja er farin að búa til
"ísinn" fyrir saumaklúbbinn. Læt ykkur vita hvernig hann
smakkast... annað kvöld 
En svona verður dagurinn:
Morgunmatur: 2 lýsisperlur, fjölvítamín, skyr.is drykkur
m/mangó og ástaraldinum og 1 vatnsglas
Morgunkaffi: 2 kaffibollar m/g-mjólk
Hádegismatur: 1 spelt
fjölkornabrauðsneið m/L&L og osti 26%, 250 g skyr.is m/vanillu,
1 dl fjörmjólk, 1/2 banani og 1 vatnsglas
Síðdegiskaffi: 2 kaffibollar m/g-mjólk
Kvöldmatur: 1 stór tortilla m/hakki, grænmeti, osti,
salsa sósu og sýrðum rjóma ásamt 1 glasi af coke light
Kvöldkaffi: ekkert
Hitaeiningar: ca. 1.2264
Hlutfall: 30% fita - 36% prótein - 34%
kolvetni
Hreyfing: engin
»
Síður: 1 2 3 ... 17
|
|